Ljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ljóð

Fyrsta ljóðlína:Vegna þess
bls.174
Viðm.ártal:≈ 1975
Vegna þess
hve sjálfstraust mitt er brothætt
sit ég og grúfi mig
inn í mína eigin skel.
Vegna þess
að ég mun aldrei geta sagt þér
hversu vænt mér þykir um þig
er skel mín full
af útsprungnum blómum
sem eru mér ímynd þín
og ég safna saman í stóran vönd
og legg við náttborð þitt
hverja nótt
er þú sefur.