Bragabar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Bragabar

Fyrsta ljóðlína:Suttungur stendur
Höfundur:Stefán Snævarr
bls.27
Viðm.ártal:≈ 2025
Suttungur stendur
í dyragætt
hleypir þeim útvöldu inn
Gunnlöð stígur gó-gó-dans
hljómsveitin Kvasir skemmtir.

Bragi blandar kokkteila
úr hörku vatns og stjörnumyrkri
reiði fjalla, angist steina
og nálægð þess
sem aldrei verður
því nú
skal
kneyfað!