Ljúflingurinn litli | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ljúflingurinn litli

Fyrsta ljóðlína:Ljúflingurinn litli
Heimild:Eimreiðin.
bls.1917 bls. 45
Viðm.ártal:≈ 1900

Skýringar

Á síðu 45 eru 2 ljóð Arnrúnar undir heitinu Barnagælur fyrra ljóðið fær svo heitið: I. Ljúflingurinn litli, en seinna ljóðið II. Heimsókn.
1.
Ljúflingurinn litli
leiðir geisla bjarta
innn í hús og hitar
hugi þeirra, er byggja.
Kyssir hann’og klappar,
kæti mönnum eykur,
laðar leynda tóna
ljúft úr pabBa hörpu.
2.
Ef að Snæi er úti,
ilma blómin. meira,
grasið verður grænna,
glaðar fuglar syngja.
Kerla í Kaldalóni
kætist svo hún grætur,
vekur visnuð stráin,
vökvar þyrstri grundu.