Stökustundir á vori | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Stökustundir á vori

Fyrsta ljóðlína:Léttast spor og lyftist brá
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Léttast spor og lyftist brá
lifnar þor að nýju.
Endurborin er mín þrá
úti í vori hlýju.
2.
Sunnanvindar verma best
viknar strindið hvíta.
Þá er yndi allra mest
auða rinda að líta.
3.
Árdagsroði fegrar fjöll
falla stoðir ísa.
Vorið boðar okkur öll
undan voð skal rísa.
4.
Flykkist hingað fuglaþjóð
flögrar kringum bæinn
til að syngja ástaróð
Íslendingabraginn.
5.
Hlýnar vangur, grund og gil
grænir anga hagar.
Okkur fangið fullt af yl
færa langir dagar.