Til Bjarna frá Gröf sextugs. Hann dvaldi þá á Arnarvatnsheiði. | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til Bjarna frá Gröf sextugs. Hann dvaldi þá á Arnarvatnsheiði.

Fyrsta ljóðlína:Heima bíður blómahlíð
bls.30-33
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Heima bíður blómahlíð
borgarlýði falin.
Ár og síð og alla tíð
áttu Víðidalinn.
2.
Drenginn snart það draumasvið
dagsins skart og nætur.
Flest var bjart og fagurt við
fjallsins hjartarætur.
3.
Holl var ganga um holt og börð
hugar þangað leita. –
Sætast angar íslensk jörð
inn í fangi sveita.
4.
Greið er heiðin, björt og breið
Bjarna leiðir þráin.
Seiðir, freyðir, full af reyð
fögur veiðiáin.
5.
Oft vill knúsa okkar þrá
ysinn húsa og gatna.
Hærri bústað hefðurðu´ á
heiði þúsund vatna.
6.
Jeppahjól þótt taki törn
tíminn spólar þarna. –
Heiðasól við silungstjörn
signi Ólu og Bjarna.