Við skál | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Við skál

Fyrsta ljóðlína:Böndin þoka af hug og hönd
bls.54-56
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Böndin þoka af hug og hönd
hjartað strokið varma.
Johnnie Walker yljar önd
útilokar harma.
2.
Varð mér heldur dropinn dýr
dómsins hrelldur bíð ég.
eftir kveldsins ævintýr
undir feldinn skríð ég.
3.
Sá er gín við fölskum feng
frelsi sínu tapar.
Bölvað svín úr besta dreng
brennivínið skapar.
4.
Herðalotinn, haldinn geig
heim í kotið fer ég.
Nú er þrotin nautnaveig
niðurbrotinn er ég.
5.
Ást þó bindi´ ég öls við haf
oft í blindni svalli
hugaryndi hlýt ég af
hverju syndafalli.