Til Friðriks frá Hömrum sjötugs 28. maí 1961 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til Friðriks frá Hömrum sjötugs 28. maí 1961

Fyrsta ljóðlína:Andinn fellir ekki sig
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Andinn fellir ekki sig
enn við brellu staka
þegar Elli ætlar þig
út af velli að taka.
2.
Þegar landið vermir vor
vængir þandir ljóma
vaknar andi, vilji og þor
viðir standa í blóma.
3.
Enginn meira mélagamm
mátti keyra sporum.
Enn vér heyrum hófaglamm
hljóma í eyrum vorum.
4.
Yfir heiðar, ás og dal
urð og greiða bletti
léstu skeiða skeifnaval
skarpt á reiðarspretti.
5.
Hófaslagið hljóma best
heflaði flag í svörðinn.
Gæðing fagurgengan lést
geysa um Skagafjörðinn.
6.
Sat þar alinn söðlamar
sómavalinn maður.
Óðins falin fótum var
för og dvalarstaður.
7.
Þó að bresti eitthvað á
er það best með sanni:
geta hresst og glatt sig hjá
gömlum hestamanni.