Veröldin og ég | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Veröldu, sem von til er
veld ég stundum trega.
Það að gera mann úr mér
mistókst herfilega.
2.
Hún sagði ég færi vegavillt
og vantaði svik og hrekki.
Gæti engan flokkinn fyllt
og fullnægði sér ekki.
3.
Úr því ég færi ekki neitt
eftir hennar vilja
væri hún orðin á mér þreytt
ættum við helst að skilja.
4.
Af því mætti allvel sjá
ef við málin könnum
hvað hún hefði andstyggð á
einmitt svona mönnum.