Til faktors Jakobsens í Hofsós | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til faktors Jakobsens í Hofsós

Fyrsta ljóðlína:Núna beina ferð ég finn
bls.151
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Núna beina ferð ég finn
falla til í kaupstaðinn
kem ég því með kútinn minn
klökkur á yðar náðir
ef þér látið ekki´ á hann
yður sífellt heilsubann
grandi; margur fjörtjón fann
fyrir minni´ ódáðir.
2.
En ef blessað brennivín
bruggar yðar náðin fín
og átta potta enn til mín
yðar sendi mildi
lofa skal og þakka þeim
er þennan setti yður í heim
hvar sem fer ég svo á sveim
sanna þetta skyldi.