Betlarinn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Betlarinn

Fyrsta ljóðlína:Betlara nokkurn bar um kvöld
bls.323-324
Viðm.ártal:≈ 1800
Betlara nokkurn bar um kvöld
að bæ hjá einum ríkum höld
og lítinn bað um líknarskammt
sem líkum hans er næsta tamt:
„yðar kristilegt kærleiksþel„.
Kvað hann, „eg þekki mikið vel.
Yðar góðvild og örlát hönd
æ hins fátæka leysa bönd,
já, um sérhvern, sem aumur er
altíð í brjósti kenni þér,
af því veit eg mín auðmjúk stun
yður til hjarta ganga mun.
Þér heyrið, að með harðri fíkn
heimta eg ekki neina líkn,
heldur mín auðmýkt hjartanlig
að mitt vesældar- aumkið líf!„
Í því sýnir hann nakin hníf.
* * *
Sólgnir ritendur sitt í hrós
með sömu breytni koma’ í ljós
þegar þeir vilja frá oss fá
fylgisdóm lagðan verk sín á;
með komplimentum undireins
ota þeir bók og hótun meins.