Erfiljóð eftir Stefán skólameistara | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Erfiljóð eftir Stefán skólameistara

Fyrsta ljóðlína:Sú hin tigna afturelding
bls.92-93
Viðm.ártal:≈ 1925
Sú hin tigna afturelding
átti þig, sem fæðir vor –
tungu þína, hug og hjarta
hendur, augu, gervöll spor.
Framsækinn til fræðihæða
fráneygur á hverri rim
sorgarskýjum sífellt dreifðir
sálarlygnu vaktir brim.

Vökumanna, er vita kynti
verður minnst með þakkarhug
þegar birti yfir enni
æskunnar, sem geymir dug.
Þess, er jafnan þráði að vísa
þjóðmenning á rétta leið –
úrvalsmanns, er æsku vora
efldi til að þreyta skeið.

Gróðurhulda landsins lítur
ljúf í bragði æ til þín
um þig dreifir ilmi úr grasi
á þig lætur drjúpa vín –
daggarveig úr hæstum hæðum
himinstöðva dreypifórn
meðan lýð og landi býður
ljósmánuður friðarstjórn.


Athugagreinar

„Guðmundur skáld Friðjónsson var mikill vinur skólameistarahjónanna og gisti oft hjá þeim er hann var á Akureyri. Hann orti sönn og fögur erfiljóð eftir Stefán og birtast hér þrjú erindi úr þeim.“