„Jafnvægið“; | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

„Jafnvægið“;

Fyrsta ljóðlína:Þó byggðin á annesjum bregðist
Heimild:Hlín.
bls.43. árg. 1961 bls.86
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Þó byggðin á annesjum bregðist
og býli í dölunum innst
menn skoða það ekki sem skaða
og skynsamlegt ýmsum það finnst
að halda nú undan og hopa
a£ hólmi í þéttbýli mest
menn hafi þó vit á að velja
og vera hvar líkar þeim best.
2.
Inn landkunni landnáma hringur,
sem liggur nú brotinn og mjór
hann eyðist nú bæði að innan
og eins þar sem liggur að sjór.
Það má ekki við því ið minnsta
og magnlausast ríki á jörð
að minnka að utan og innan
og afnema ræktaðan svörð. —
3.
Og dýrmætust er hún nú orðin
in afskekkta byggð þessa lands
því Íslendings eðlið hún fóstrar
og óbrjálað tungumál hans
það höfum við haft fyrir sannað
en hitt er nú enn ekki víst,
að borgir það meti ið mesta,
er missa við viljum þó síst.