Mannkynssaga fyrir byrjendur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Mannkynssaga fyrir byrjendur

Fyrsta ljóðlína:Undan ferðamannsins fæti
bls.201
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Undan ferðamannsins fæti
valt steinn úr stað
Og steinninn hélt áfram að velta
veistu það?
2.
Og sjö þúsund árum síðar
kom Sing Sing Hó
Og Sing Sing Hó fékk sér konu
en konan dó.
3.
Og sjö þúsund árum síðar
kom Ghagga Ghú.
Um Ghagga Ghú finnst hvergi
nein heimild nú.
4.
Og sjö þúsund árum síðar
komst þú, komst þú.