Ó, sól | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ó, sól

Fyrsta ljóðlína:Ó, sól, ó, sól mín
bls.1962 bls. 65
Viðm.ártal:≈ 1950
Ó, sól, ó, sól mín
sigraðu jökulinn kalda
ó, sól
lát vermandi ljós þitt
lýsa og falda
sálina mína
ó, sól
sigraðu jökulinn grimma
sigraðu hugskuggann dimma
sem hertekur brautina mína.