Haust | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Haust

Fyrsta ljóðlína:Allt fram streymir endalaust
bls.113
Viðm.ártal:≈ 1850
1.
Allt fram streymir endalaust
ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust
horfin sumars blíða.
2.
Fölna grös, en blikna blóm
af björkum laufin detta.
Dauðalegum drynur óm
dröfn við sjávarkletta.
3.
Allt er kalt og allt er dautt
eilífur ríkir vetur.
Berst mér negg í brjósti snautt
en brostið ekki getur.
1861