Breytt mannlíf | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Breytt mannlíf

Fyrsta ljóðlína:Skagaströnd er orðin að
bls.frá höfundi síðsumars 2017
Viðm.ártal:≈ 2025
1.
Skagaströnd er orðin að,
– og mér finnst það bagi –
eiginlega öðrum stað,
öðru samfélagi.
2.
Fyrri tíðar fasta storð
finnst mér enginn sjái.
Eltir lífsins yfirborð
einhver falskur gljái.
3.
Eftir manna fyrri ferð
fæstir vegi halda.
Virðist flest með verri gerð
vilja sínu tjalda.
4.
Yfirlætis stælar stíft
stuðla að breyttum hótum.
Svo að varla virðist líft
víða á félagsmótum.
5.
Setur mark á menn og víf
mikill tíma hraðinn.
Hégómi og hundalíf
hellist yfir staðinn.
6.
Er að verða held ég hér
hitt og þetta galið.
Eignarhald á hundum er
helst til gildis talið.
7.
Þó reynist víða rakkar tveir
ræktaðir í standi,
hærra álit hreppa þeir
sem hafa þrjá í bandi.
8.
Lífs er stíllinn læstur í
leiðri sýndarmennsku.
Allt er tengt við hopp og hí
heitir sitt – á ensku!
9.
Margt er fólkið meira en nóg
merkt af stressi illu.
Eins og það um þéttan skóg
þvælist – haldið villu.
10.
Skyldi ei neitt fá skapað því
skárra næði stunda
svo tíminn fari ekki í
alla þessa hunda ?