Eggert svíkur Gunnar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Eggert svíkur Gunnar

Fyrsta ljóðlína:Eggert veitir enga fórn
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Eggert veitir enga fórn
eða fyllir vikið
því garpurinn hefur Gunnarsstjórn
greinilega svikið.
2.
Annað sinn hann ekki má
utan flokka gista
enda mun hans æðsta þrá
öruggt sæti á lista.
3.
Á Bergþórshvoli bjó hann Njáll
bækur eru um það kunnar
afbragðs karl, í orðum háll
en aldrei sveik hann Gunnar.