Sumarvísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sumarvísur

Fyrsta ljóðlína:Vorið nýja vel út sér
bls.61
Viðm.ártal:≈ 1825
1.
Vorið nýja vel út sér
vænkast tekur hagur
sunnugeisli hvar og hér
himinn gyllir fagur
hauðrið grær, nú frá oss fer
ferskur mæðuslagur
skólatíð þá enduð er
yndis ljómar hagur.
2.
Strax á ferð hver seggur sést
sem réð útlegð kanna
heldur áfram hann sem mest
að húsum foreldranna
eykur reisu yndið mest
ölsins stútfull kanna
og ef essið ekki lest
urtadyngju að spanna.
3.
Hvar er allir heilir á
húfi standa þegnar
og aðkominn fær seggur sjá
sem hann kaus þeim vegnar
en auðarbríkur úti stá
eins og hjartansfegnar
háls um vinar vænar þá
vefja mundum gegnar.