Ótíð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ótíð

Fyrsta ljóðlína:Hríða blikur kulda kumri
bls.88
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Hríða blikur kulda kumri
kraft með undra hreyfa nú
átta vikur eru´ af sumri
átján hundruð sextíu og þrjú.
2.
Hafið þekur ísinn auða
öskrar drekinn vinda hátt
skepnur hrekjast heim í dauða
hriktir þrekað eftir fátt.