Um Fljótin | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Um Fljótin

Fyrsta ljóðlína:Fagra dýra feðra sveit
bls.74
Viðm.ártal:≈ 1925

Skýringar

Fagra dýra feðra sveit
farsæld vefji þig að hjarta.
Innst í þínum áa reit
yndi sælu þar ég leit.
Rætist von þín helg og heit
um hæsta mark og framtíð bjarta.
Fagra dýra feðra sveit
farsæld vefji þig að hjarta.