Ó, bernskujörð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ó, bernskujörð

Fyrsta ljóðlína:Ó, bernskujörð, hví bliknar akur þinn?
bls.234
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Ó, bernskujörð, hví bliknar akur þinn?
Hví blómgast ekki grösin endalaust?
Er svifinn fugl, er söng við gluggann minn?
Er sumarið á förum, komið haust?
2.
Ó, bernskujörð, hví blóðgast sonur þinn?
Hví bliki stáls og vopna yfir slær?
Hvers leita þeir, sem leiða herinn inn
í landið sinna feðra, móðir kær?
Ó, bernskujörð, hví blundar lýður þinn
er berst að þínum ströndum vígaher?
Er Þveræingi þorrið afl um sinn?
Á þjóð ei lengur Drottinn yfir sér?