Lekinn í Laugarnesi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Lekinn í Laugarnesi

Fyrsta ljóðlína:Kunni að haga kóngsins drótt
Viðm.ártal:≈ 1825
Flokkur:Háðkvæði

Skýringar

Biskupsstofan í Laugarnesi var mikið steinhús og dýrt. Steingrímur Jónsson lét byggja hana vorið 1825 og hafði til þess danska smiði.
1.
Kunni að haga kóngsins drótt
kostnaðurinn frekur
þá stóra byggði stofutóft
sem strax á eftir lekur.
3.
Steinhúsið með stórum sal
sem stormur enginn skekur
margt sem gjörði mannaval
mest af öllu lekur.
6.
Íslenskan ég einhvern finn
sem eins vel nagla rekur
og kákar hægt við kofann sinn
sem kannski ekki lekur.
9.
Stormurinn í stofugrind
stóru frá sér ekur.
Þar má hafa þerrivind
þegar ekki lekur.