Jólavísa | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jólavísa

Fyrsta ljóðlína:Nei, hér er þá dálítil hjörð á beit
bls.148
Viðm.ártal:≈ 1900
Nei, hér er þá dálítil hjörð á beit
og hjarðsveinn á aldri vænum. –
Í hverri einustu Íslands sveit
og afkima fram með sænum
nú stendur hún jólastundin há
með stjörnuna yfir bænum.