Ferðavers | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ferðavers

Fyrsta ljóðlína:Langur finnst mér Langidalur
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Langur finnst mér Langidalur
lítt um náttstaði valið get
móti mér andar andi svalur
ætlar bráðum að gera hret.
Á húsdyr bænda með hryggð er les
Hjálmar er burtu og Jóhannes.
Enga kunningja þar eg þekki
Þorlákur prestur sést nú ekki.
Súrnar mér augum sjáldur í
sorgar úr hafi dregur ský.
2.
Burt er Jónas frá Breiðavaði
byrgir gröfin fyrir mér
söknuður er mér sár og skaði
Sigurður Reykjum horfinn er
frá Sauðanesi farinn Jón
frægur bóndi að reynd og sjón.


Athugagreinar

Slitur úr þessum ferðaversum Bólu-Hjálmars fór Jósefína, amma vefsýslumanns, stundum með, en Bólu-Hjálmar dó 12 árum fyrr en Jósefína fæddist. Jósefína Pálmadóttur var fædd 1887 og lengi búsett á Mörk á Laxárdal. Heitið ferðavers var sett inn hér á vefnum.