Rætur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Rætur

Fyrsta ljóðlína:Lýsir gull úr heimahögum
bls.15
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Lýsir gull úr heimahögum.
Hljómar rödd frá liðnum dögum
brot úr gömlum sögum. –
Gott var að koma að ömmu hnjám
læðast þangað létt á tám.
Oft á stokkinn eg mér tyllti
eftirvænting hugann fyllti.
Þarna hlaut eg nokkurt nám.
2.
Glöð eg sótti hest í haga
heita, bjarta sumardaga.
Ætíð gerðist einhver saga
inni í dal og heima í bæ.
Svona var það sí og æ.
Ánægð hljóp um engi og grundir.
Alltaf eru þessar stundir
tengdar sól og sunnanblæ.
3.
Ævintýrið lokkar löngum.
Leita eg eftir gömlum föngum
heyri ennþá óm af söngum.
Oft var kveðin stemma góð.
Stundum voru lesin ljóð.
Þessu heitt eg öllu unni.
Enn frá litlu baðstofunni
lýsir mér hin gamla glóð.