Jóhann Guðmundsson frá Stapa sjötugur 22. janúar 1994 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jóhann Guðmundsson frá Stapa sjötugur 22. janúar 1994

Fyrsta ljóðlína:Eitt miðsvetrarkvöld þegar mánaskin
Heimild:Feykjur.
bls.46-47
Viðm.ártal:≈ 2000
1.
Eitt miðsvetrarkvöld þegar mánaskin
markaði rúnir í svellin
og vökuljóð rímaði veröldin
um vatnið, Stapann og fellin.
2.
Þá gerðist það sem greint verður frá
að Guð var í önnum að skapa
með glampa í augum og glettni um brá
hann gerði Jóa frá Stapa.
3.
Af einstakri natni hann verkið vann
sem vitnar um stund og staður
en það vissi enginn þá, nema hann
að þar fæddist listamaður.
4.
En síðan teljum við sjötíu ár
og sungið er enn frá Stapa
og Guð er víst næstum jafn náðarhár
þótt nú sé Jói að skapa.
5.
Ég komst að því sanna á kvöldinu fyrst
er kynntist ég Jóa frá Stapa
að eitt er sigur í íþrótt og list
annað að glíma og tapa.
6.
Megi söngur, gleði, sólskin og vor
við sjötugsaldur þinn ríma
með þökk fyrir mikilvæg mörkuð spor
í menningu okkar tíma.