Veðurspá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Veðurspá

Fyrsta ljóðlína:Hryllir mig við hrikalegum gný
Viðm.ártal:≈ 1975
Hryllir mig við hrikalegum gný
hafið þjónar sinni lund
þjóta yfir vetrarskógi ský
skekur húsin illvíg mund.

Innisætum orðið gæti kalt
enn mun ráð að heyra spá:
Bráðum gerir byl um landið allt
bráðum skellur veðrið á.