Ég ætla | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ég ætla

Fyrsta ljóðlína:Ég ætla norður í Eyjafjörð
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Ég ætla norður í Eyjafjörð
ilminn að teygja frá gróinni jörð
þó veðrin á leiðinni verði mér hörð
vil ég það heldur en dreyma
það bíður mín birkið heima.
2.
Og ástin, sem að ég átti og á
þó árin tólf séu liðin hjá
síðan ég kvaddi, og fór henni frá
– fjarlægðin kann að geyma –
hún bíður mín – bíður mín heima.