Svalalind | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Svalalind

Fyrsta ljóðlína:Undir háu fjalli
bls.16
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Undir háu fjalli
fann ég þig
fátækur einmana stúfur
á ferð um torsótta vegu.
2.
Leingra þurfti ég ekki
laun erfiðis míns voru
margfalt ríkulegri
mannvirðingum og gulli.
3.
Þú ert ekki stór
þú ert ekki djúp
en þú ert svöl og tær
og þú slökktir þorsta minn.