Hugsað heim | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hugsað heim

Fyrsta ljóðlína:Hugur minn leitar á húnvetnska slóð
bls.148-9
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Húnaþing
1.
Hugur minn leitar á húnvetnska slóð
því heima er tekið að vora –
og þrá mína flétta á fátækleg ljóð
á flugi til æskunnar spora.
Þar brosir þú móti mér björt eins og fyrr
ó, blessaða sveitin mín kæra!
Að öllu því helgasta opnast þér dyr
sem átt getur móðir að færa.
2.
Vorklæðið fegursta faður þinn ber
og fléttað í angandi rósum.
Já, til er ei neitt sem eins töfrandi er
og tign þín á vordögum ljósum.
Fagurblá vötnin og fossandi ár
sem falla við blómstruðu túnin
Í heiðinu minnast við himinninn blár
og háfjalla gnæfandi brúnin.
3.
Eg elska þig sveitin mín, indæl og góð
og allt sem þú hefur að bjóða.
Eg elska þig klædda í árroðans glóð
og aftnana kyrrláta og hljóða.
Eg elska þín fjöll, já hvern einasta stein
og elska hvert blóm, sem þig skreytir.
Eg elska þitt sumar með sólbrosin hrein
þeirri sýn aldrei fjarlægðin breytir.
4.
Þótt langt sé ég frá þér að líkama til
er létt mínum huga að fljúga.
Þá síðast við jarðneska sviðið ég skil
mín sála mun heim til þín snúa.
Því átthagatryggðin er traustari en hel
þau tengsli ei fjarlægðin slítur.
Svo gang þinna barna eg gæfunni fel
og gengi sem aldrei þeim þrýtur.