Kvöld við varðeldinn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kvöld við varðeldinn

Fyrsta ljóðlína:Hér er fagur fjallahringur
bls.2015 bls. 149
Viðm.ártal:≈ 2000

Skýringar

Önnur heimild: Skriplur Merkjalækur 2019
1.
Hér er fagur fjallahringur
fjörðurinn er spegilsléttur
uppi gnæfir Urðartindur
allt er kvöldið töfrum prýtt.
Varðeldurinn ljúft hér logar
laðar söngva fram af vörum
nikkan kveikir fótafjörið
á fjörukambi er stiginn dans.
2.
Aldnir jafnt sem ungir gleðjast
ekki spillir gagnsætt húmið
sem í dulargervi geymir
gersemar við Norðurfjörð
Klukkan eitt er bálið brunnið
bara glæður eftir sindra
harmoniku tónar tæmdir
tíminn líður allt of fljótt.
3.
Þá skal haldið heim í tjöldin
höfga næturhvíld að teyga
okkar bíða aðrir dagar
ótal margt í skauti bera.
Minningarnar mætar geymast
mörg þó fyrnist ævisporin
frændaliði færi þakkir
fyrir þessar góðu stundir.


Athugagreinar

Móðir höfundar, Guðríður Guðlaugsdóttir, var frá Steinstúni við Norðurfjörð og þar héldu afkomendur hennar ættarmót með frændum eina sumarhelgi 1997.