Sálmur 460 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sálmur 460

Fyrsta ljóðlína:Til hafs sól hraðar sér,
Viðm.ártal:≈ 1825
1.
Til hafs sól hraðar sér,
hallar út degi,
eitt skeiðrúm endast hér
á lífsins vegi.
2.
Ó, Guð, hvort annað nú
ennþá vor bíður,
auglýsir engum þú
óðar en líður.
3.
Nóg er, að vitum vel,
vort líf að endi
og að það eins og hel
er þér í hendi.
4.
Að um oss annt er þér,
að sért vor faðir,
hughraustir vitum vér -
vissa nóg það er.
5.
Þó dagsins skundum skeið
skjótt fram að nóttu,
brátt hennar líður leið
að ljósri óttu.
6.
Svo lífið braut er breið
til banakífsins,
og dauðinn eins er leið
aftur til lífsins.
7.
Svo lifa sérhver á
sem sálast eigi,
en andast eins og sá,
sem aldrei deyi.
8.
Í þína umsjón nú,
ástríki faðir,
felum líf, byggð og bú,
blundum svo glaðir.