Barnagæla | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Barnagæla

Fyrsta ljóðlína:Sterk eru tök hjá storminum
Heimild:Andstæður.
bls.100-104
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Sterk eru tök hjá storminum
staðlaus rök hjá fávísum
lotin bök á bændunum
banavök í fallvötnum.
2.
Oft er gjall í eldinum
óþarft spjall hjá málgefnum
rekstrarhalli á reikningum
rós á stalli í klettunum.
3.
Oft er stál í eggjunum
undirmál hjá fláráðum
kaupin hál hjá krömurum
kotungssál í valdhöfum.
4.
Oft er mór í mýrunum
mjúkur jór á sprettunum
þarfur bjórinn þorstlátum
þröngur skór á fótunum.
5.
Oft er hlass í haugstæði
hylskinn lassi á vergangi
geðillt skass með skætingi
skeindur rass á ómenni.
6.
Oft er hagl í hríðunum
heyktur nagli af klaufvirkum
fánýtt bagl hjá fúskurum
flókið tagl á stóðhrossum.
7.
Oft er kvörn í eldhúsum
uppþembd görn í slefberum
aumlega vörn hjá amlóðum
óþæg börn á hrakhólum.
8.
Oft er mosi í mýrunum
magnað vos á sjóferðum
hregg og rosi á haustnóttum
hýrlegt bros hjá ungmeyjum.
9.
Oft er raun að ráðlausum
reiknuð laun að verðleikum
blóðug kaun af barsmíðum
brunahraun á afréttum.
10.
Oft er reyr í runnunum
rauðaleir í flóunum
hljóðglöggt eyra á háðgjörnum
hlákuþeyr á vordögum.
11.
Oft er fönn í fjalldölum
fögur hvönn á afréttum
ölduhrönn á útnesjum
eiturtönn í rógberum.
12.
Oft er veiði í vötnunum
valinn greiði ferðlúnum
frosin skeið á fjörunum
falin sneið í hrósyrðum.
13.
Oft er brenna að árslokum
orðasenna á mannfundum
dyndilmenni í danssölum
dyggðir kvenna í smáskömmtum.
14.
Oft er list í ljóðunum
lasin vist hjá svíðingum
meyja kysst í myrkrunum
mjólkin yst hjá griðkonum.
15.
Oft er tréni í ávöxtum
unnin greni á vordögum
dý og fen í dældunum
deyfð og slen í horskjátum.
16.
Oft er babl í börnunum
brattur skafl í fjallshlíðum
haldlaus afli í hugdeigum
hættutafl í fjárspilum.
17.
Oft er hop á áttunum
ístrulopi á höfðingjum
grálegt skop hjá geðköldum
góður sopi á pyttlunum.
18.
Oft er bára á blindskerjum
breiður skári á engjunum
legusár af sjúkdómum
sorgartár af vonbrigðum.
19.
Oft er lakk á umslögum
orðið takk hjá kurteisum
söluprakk hjá svindlurum
sveitarflakk á letingjum.
20.
Oft er vín í veislunum
vinsælt grín hjá skáldunum
hænsni og svín á sorphaugum
svipljótt trýni á prökkurum.
21.
Oft er fé á flækingi
fögur tré með ávexti
háa c í söngfræði
saurguð vé af níðingi.
22.
Oft er raup í ragmennum
rennt úr staupi af ölkærum
óvíst kaup hjá orðfölskum
aprílhlaup hjá biðlunum.
23.
Oft er brot á boðorðum
bjargarþrot í harðindum
fýsnaskot í fjörmiklum
fýlutota á kerlingum.
24.
Oft er kröm í kornbörnum
kilpuð löm á hurðunum
mögur höm á hestunum
heimskan fröm í tilsvörum.
25.
Oft er klöpp í árbotnum
undin löpp á hjólfættum
aldan kröpp á innfjörðum
óvís höpp af giftingum.
26.
Oft er bleyta á engjunum
eftirleit á heiðunum
krofin feit af kindunum
kossageit á stúlkunum.
27.
Oft er gæla í ástmálum
eftirmæli í blöðunum
barlómsvæl í bændunum
brothætt sæla í hjúskapnum.
28.
Oft er hrefna á innfjörðum
undirgefni í þrællyndum
fágað stefni á fleyjunum
fjölþætt efni í spakmælum.
29.
Oft er kvak í álftunum
orkutak hjá karlmennum
kveðin staka á kvöldvökum
kropp í bak á fjarstöddum.