Knúið á dyr Flosa | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Knúið á dyr Flosa

Fyrsta ljóðlína:Húnaþing horfði mót
bls.70-71
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Húnaþing
1.
Húnaþing horfði mót
harðindakafla.
Flóinn, sem hafði hót
hjálpað með afla,
brást, hvorki bærði þá
brim eða gjálfur,
íshella ein að sjá,
ekki hann sjálfur.
2.
Bangsi í byggðir sér
bregður af jökum
loks, þegar ekkert er
eftir af jökum.
Hvesst var nú atgeirs egg,
áður hinn rammi
beinfrosinn bæjarvegg
bryti með hrammi.
3.
Bóndi til gjafa gekk
greiður í spori,
kumblið á heyi hékk
– hallaði að vori. –
Þetta var þá að sjá
þar innan veggja:
Birna á beði lá,
búin að leggja.
4.
Heystál, er hríð er á,
húnunum skýlir,
birnan í bæli hjá
börnunum hvílir.
Konan þeim kýrnyt ber,
kostur sá nægur,
gestrisnis greiði er,
gerður hvert dægur.
5.
Lónað var löndum frá,
ljómaði Harpa,
útselur eftir lá
einn þar í varpa.
Birna þann brimil vann,
braut hafði snúið,
fjárbónda fenginn þann
færði í búið.