Sá liggur neðst, sem hugsar hæst | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sá liggur neðst, sem hugsar hæst

Fyrsta ljóðlína:Sá liggur neðst, sem hugsar hæst
bls.1939 bls. 114
Viðm.ártal:≈ 1925
Sá liggur neðst, sem hugsar hæst
og himni næstur er.
Sá hreykist efst, sem gullið glæst
að Guði vígir sér.
Þá jarðarberið blátt sig fól
und blaði í lífsins önn,
þá stendur trénuð hæst á hól
hin hreykna, stolta hvönn.