Gigtarsálmur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Gigtarsálmur

Fyrsta ljóðlína:Við fiðlu braga svo fiktinn
Heimild:Kviðlingar.
bls.2
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Við fiðlu braga svo fiktinn
eg fer nú að yrkja stöku
um hánótt, því helvítis gigtin
heldur fyrir mér vöku.
2.
Farinn er fótur að stirðna, –
furðað mig getur það eigi; –
býsna oft búinn að spyrna
við broddum á lífsins vegi.
3.
Þeir, sem að táknunum trúa,
svo trúaða marga eg þekki! –
halda við förum að fljúga,
og fæturnar brúkum þá ekki.
4.
En, þó að eg breytingu þrái –
því má nú hamingjan ráða, –
eg kvíði svo fyrir eg fái
fluggigt í vængina báða.