Streitan | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Streitan

Fyrsta ljóðlína:Allt þetta veraldar vés og rex
bls.31
Viðm.ártal:≈ 1975
„1.
Allt þetta veraldar vés og rex
varla þoli ég lengur.
Skapið ýfist og skallinn vex,
og skrokkurinn úr sér gengur.
2.
Það dynja sem sé ósköpin öll
á mér á degi hverjum:
yfirvofandi víxlaföll
til viðbótar heimiliserjum.
3.
Eilífur sprettur, aldrei stans,
afslöppun síst við hæfi.
Svo líður á hörkuhlaupum manns
hundstíð og kattarævi.“