Jakob Thorarensen sjötugur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jakob Thorarensen sjötugur

Fyrsta ljóðlína:Við Elli glíminn
Heimild:Eimreiðin.
bls.LXII ár 2. hefti apríl-júní 1956 bls. 81-82
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Við Elli glíminn,
í orði kíminn
og aflakló
á Boðnarmiðum
og Sónarsviðum,
þér sefi hló,
hvort ofsi var
eða ríkti ró,
í ráðum snar,
þegar ýfði sjó.
2.
Þótt ilmgrös kali
um Íslands dali,
er eldur hlýr
í ógnardjúpi
með hörðum hjúpi,
sem hugar frýr.
Svo finnst mér blóð
þitt og eðli allt
sem eimsins glóð,
en þó bjart og svalt.
3.
Með hægu fasi
og fjarri þrasi
þér fannstu leið
um hjarn og klungur
og hæstu bungur
sem höfin breið,
átt fasta lund,
ert þó gleðigjarn
á góðri stund
eins og viturt barn.
4.
Frá Mímis vini
hjá máttkum hlyni
fékkst margan teyg
úr römmum hornum
og rökkurfornum
af rauðri veig,
sem kynngi gædd
var og kjarna drýgð,
með kyndli glædd
og af helgi vígð.
5.
Í málsins smiðju
við andans iðju
þú unað gast,
þitt orðvopn sorfið
og sveigt í horfið,
en sindur gnast,
þá hvesst og fægð
voru hyggjusverð,
uns hlaustu frægð,
er með sæmd þú berð.
6.
Á skáldaþingi
þig Iðunn yngi
sem Óðins lið
með eplum sínum
og aldinvínum
við Ásgarðs hlið,
uns falla tjöld
öll og tæmist svið
og tignarvöld
semja hinstu grið.