Epitaphium að leiði Hallvarðar Hallssonar. Ort af Hjálmari Jónssyni | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Epitaphium að leiði Hallvarðar Hallssonar. Ort af Hjálmari Jónssyni

Fyrsta ljóðlína:Í skothelgi víkur
Viðm.ártal:≈ 1800
1.
Í skothelgi víkur
Skjaldabjarnar,
á stynjandi strönd
frá staði norður,
geymir Hallvarður,
Halli borinn,
grjóti studda
garða sína.
2.
Afar þróttramur
Íslendingur,
skrautlaus Norðmanns sál
skein í augum,
virti hann hvarvetna
að vettugi
ónýtt apaprjál
yngri tíða.
3.
Hann ei höfðingja
hræsni smurði,
matti merglausar
mannvirðingar,
þóttist hann þekkja
þaðra og héðra
líka sína
af leiri gjörva.
4.
Afar skilríkur
ærið tryggur,
fordildarlaus
og fjölvís næsta,
einhæfur þótti
við almennings skap,
reyrt var framferðið
reglum föstum.
5.
Fornöldin skein
á skinnkyrtli hans,
íslenskan huldi
herðar breiðar,
fagurt og einfalt
flaut af vörum
mærðar spunnið spjall
spekirúna.
6.
Ægis dætur
daprar mæna
heim á Hallvörðu
heli vígða,
Stórbrýnd Strandafjöll
stara með hátign
á leifar fornfrægar
undir fótum sér.
7.
Háir strandjöklar
og hraunin blá,
fyrrum Hallvarðar
fótum leikin,
geyma sér í gaupnum
sem goða menjar
mærings spor
mosa vaxin.
8.
Ei skaltu dirfast
dóm upp kveða,
hrekkvís heimur
að Hallvarður gröf,
hræsnandi sál
í holu þína
skríð frá dáins dys
og dæm þig sjálf.