Móðurminning | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Móðurminning

Fyrsta ljóðlína:Nú grætur minning gengnu æskusporin
bls.163
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Nú grætur minning gengnu æskusporin
um grýtta strönd við ysta norðurhaf
þar mildur blærinn leikur létt á vorin
og ljúfa gleði móðurástin gaf.
2.
Sú ást, er enga eigingirni þekkti.
Sú ást, sem vildi létta hverja raun.
Sú ást, er aldrei, aldrei nokkurn blekkti.
Sú ást, sem gaf, en þáði sjaldan laun.
3.
Nú brosir vor í byggðum okkar heima.
Þar blíðlát gola strýkur unga grein.
Létt af brúnum lindir bjartar streyma,
ljóðar alda hljótt við fjörustein.
4.
Þar ljómar sólin, lauguð hafsins bárum
um ljósa nótt, er syrgir horfinn dag.
Þar grætur jörðin djúpum daggartárum,
frá duldum strengjum ómar kveðjulag.
5.
Haf hjartans þökk, þótt sigi sól í hafið
og sorgartári væti föla kinn.
Þitt móðurstarf er morgunljóma vafið
og minning besta, kærleikshugur þinn.