Sköpunargleði | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sköpunargleði

Fyrsta ljóðlína:Innra með mér oft ég finn
bls.129
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Skáldsþankar
Innra með mér oft ég finn
eld sem fyllir huga minn,
þá er eins og geisli glóð
gegnum allt mitt rauða blóð.
Sál mín fer úr sínum skorðum,
fyllist öll af fleygum orðum,
elur af sér ljóð.