Kveðja | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kveðja

Fyrsta ljóðlína:Með gullsaumuðum seglum hvítum
bls.28
Viðm.ártal:≈ 1975
Með gullsaumuðum seglum hvítum
sé ég fley þitt leysa bönd,
sigla hraðbyri hærra, hærra
uns Herrans draumalönd
brosa við þér björt og fögur,
brátt á enda er leiðin ströng.
Þar ljúfir englar ljóssins vaka,
lýsa þér og móti taka.
Undu sæll við yl og söng . . .