Sálmur 254 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sálmur 254

Fyrsta ljóðlína: Til þín ég leita, lausnarinn minn góði,
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Til þín ég leita, lausnarinn minn góði,
sem leystir mig með þínu hjartablóði
og mínar syndir vildir burtu bera,
svo barn þitt ég um eilífð mætti vera.
2.
Nú ber ég lítið barn að fótskör þinni,
að blessun þína lífið unga finni,
og vaxi svo að visku’ og kærleik sönnum,
í von og trú og náð hjá Guði’ og mönnum.
3.
Ó, leið það framhjá lífsins villuflaumi,
og ljá því vernd í freistinganna straumi,
svo ljúft því verði’ að lúta þínum vilja,
þitt ljós að sjá, þitt orð að nema’ og skilja.
4.
Með þinni hjálp ég skal því veginn vísa
og verja það, nær efans hrannir rísa,
svo barn mitt aldrei gleymi Guði sínum,
en gangi frjálst á náðarvegi þínum.
5.
Sé trú mín veik, þá vertu hjá mér, Drottinn,
mín von er grein af kærleik þínum sprottin
og skrýðist laufi’ í ljósi dýrðar þinnar
sem lífsins tré í djúpi sálar minnar.