Sálmur 564 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sálmur 564

Fyrsta ljóðlína:Á dimmri nóttu bárust boð
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Á dimmri nóttu bárust boð
um bjartan, nýjan dag.
Guð sendi engla sína til
að syngja dýrðarlag.
Hann framtíð jarðar börnum býr
og boðar fögnuð þeim,
því kærleikur, sem kuldinn flýr
nú kom í þennan heim.
2.
Að heyra boðin himni frá
fær heimi þínum breytt.
Þau boð að heilög himins dýrð
sé hjarta þínu veitt.
Guð lætur ekkert aftra sér
og auðgar barnið sitt.
Hann gefur jólagleði þér
og guðsríkið er þitt.
3.
Guðs engill flytur ennþá boð
með undurskærri raust
um sálarfrið, um frelsi til
að fagna óttalaust.
Á jólahátíð heilög kyrrð
fær hugann leyst úr þröng,
því heimurinn á hljóða stund
og heyrir englasöng.