Heit | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Heit

Fyrsta ljóðlína:Eg vil lifa langa ævi
bls.93
Viðm.ártal:≈ 1925
Eg vil lifa langa ævi, –
líf sem náðargjöf eg þáði –
dýrka, trú í dagsins verki,
Drottinn minn, og honum vinna,
aðra gleðja, góðs þeim biðja,
gefa bros af hlýjum sefa,
hefja blys, er húmin lýsi,
hugga þá, er lifa í skugga.