Vor | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vor

Fyrsta ljóðlína:Sæl, gola! Sól ylar dali.
bls.93
Viðm.ártal:≈ 1950

Skýringar

15. apríl 1947
Sæl, gola! Sól ylar dali.
Send vind um grennd, bindið hendur,
fönn vinnið, fram hrannir renni,
fallþungar mjallbungur allar.
Fjöll, hjallar, fell, stallar, halli
fljótt rísi, gnótt ísa lýsi.
Foss kátur fyss-látum státi,
fram sprækur hver lækur sæki.