Leiðin til ánægju | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Gakk þú fram með friði
frjáls á dyggða vegi,
í því augnamiði,
að enginn hryggjast megi.
2.
Bergmál illra arta
ávallt niður kæfðu.
Glæddu göfgi í hjarta,
gremju og hatur svæfðu.
3.
Æ sá andi streymi
út um heimsins byggðir.
Hrekja böl úr heimi
hreinar kærleiks dyggðir.