Vetrarkvöld | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Mánans mjúka birta
munardrauma vekur
– ljúfa, löngu gleymda
lífsins dægurskvaldri.
Inni byrgður andi
út í geiminn þráir,
vonir vængjalúnar
vitja á fornar slóðir.