Norðurárdalur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Fjalladalur, fóstri minn,
faðmi barn sitt vefur.
Geislar heitir kyssa kinn,
Kári þróttinn gefur.
2.
Hér á ég margan mætan blett,
sem mér eru bernskukærir,
þar sem hoppa um lautir létt
lækir silfurtærir.
3.
Oft þá hauður húmið fól,
hreytti fjúki á gluggann,
skein hér glettin gleðisól
gegnum vetrarskuggann.
4.
Þegar sólrík sumartíð
sigrað kuldann hefur,
þína björtu blómahlíð
blessun drottinn vefur.
5.
Aldrei fegri eg leit á lönd
lífsins sunnu skína.
Eg hef tryggða bundið bönd
við börð og móa þína.
6.
Þó eg flytti í fegri sveit
með fríða skógarlundi,
mela, holt og hlíðarreit
harma sárt eg mundi.