Gerða litla les ömmu ljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Gerða litla les ömmu ljóð

Fyrsta ljóðlína:Nú skal hér í næði
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:55
Flokkur:Jóðmæli
Nú skal hér í næði
ná í lítinn pésa.
Ætlar elskan smáa
ömmu vísur lesa.
Hlýtt á hennar tungu
hljóma ömmu bögur,
svo að vesöl vísa
verður næsta fögur.